mánudagur, 7. okt 2002

Frí frá míns hyski

Kæru vinir,

Ég er búinn að vera svo önnum kafinn síðustu daga að ég var að mestu hættur að nota MSN Messenger. Vinsamlegast ekki halda að ég sé búinn að fá nóg af ykkur og sé farinn að blokka… Það er smá stund í það ennþá. =)

Á laugardagskvöld (nótt öllu heldur) steindrapst síminn minn, sem er svosem ekkert nýtt því helvítið er búið að vera dansandi á milli heima lifenda og dauðra í þó nokkurn tíma. Ég var rétt í þessu að koma greyinu í gang aftur og þvílík súpa af SMS'um, sheesh. Ég fékk því frí frá öllu stressi á sunnudaginn og líkaði bara nokkuð vel. Familían krúsaði bara uppí sveit og át grilluð húsdýr í rólyndis fílíng.

Loksins frí, ég var alveg búinn að gleyma hvað það er gott að slaka á… Spurning hvort að ég fæ mér yfirleitt nýjan síma?


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar