Forseti Íslands tilvonandi?
Jonni spurði mig síðdegis í gær hvort að ég vildi ekki kíkja með sér á smá Stuðmanna gigg? Tjú, alveg eins
segi ég, án þess að hafa hugmynd um hvað ég var að fara að sjá…
Kom í ljós að Stuðmenn voru semsagt með einskonar yfirlits tónleika í þjóðleikhúsinu. Þau spiluðu úrval gamals efnis ásamt nokkrum nýjum lögum. Ég var sæmilega ánægður með lagavalið en bandið stikklaði á stóru í gegnum alla þessa bílfarma af dóti sem þau eiga til… Af mínum uppáhalds má nefna Á skotbökkum, Söngur Fjallkonunar og Mikki.
Bandið var í banastuði með auka píanista, jóðlara (!), percussion leikara, borgardætur í bakröddum o.s.frv… Skotheldur flutningur algerlega.
Svo glotti Jonni bara þegar ég var gjörsamlega að fríka út yfir þessu öllu… Ég er ennþá í góðum fíling - búinn að vera að spila Stuðmannaplötur í allan dag. Jonni, ef þú ert að lesa; (úúú, ofsa ertu góður gæi…
) Takk kærlega fyrir mig!

Ein ummæli við “Forseti Íslands tilvonandi?”
Þessi undarlegi titill kemur af því að við vinirnir höfum verið að grínast með það að JFM ætti svo sannarlega erindi í forsetaframboð. Reynið aðeins að fá heilann til að gríða utan um stórfengleika þessar hugmyndar... það bara gengur ekki ;-)
Borgar skrifaði 6.7.2003 2:31