laugardagur, 19. okt 2002

1.. 2.. og grímuball!

Ég sem hélt um síðustu helgi að grímubúningamál væru komin í vitleysu hjá mér… Aldrei að örvænta, ég dreif það af að sauma mér glæsilegan búning á 3 dögum enda er hér á ferðinni sjóaður textílraðmorðingi. Það sem ég saumaði verður leyndó þar til partýhöld hefjast en svo lofa ég myndum.

Ég get þó gefið þær vísbendingar að búningurinn er alveg massífur og fylgir honum hárlitun og stælíng. Þar að auki þurfti ég að smíða mér smá props sem reyndist vera mikill höfuðverkur að finna efni í. Allt um þetta í þynnkunni á sunnudaginn…


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings