Greinasafn fyrir October, 2002

föstudagur, 25. okt 2002

Blood on the dance floor

Undanfarna daga er ég að heyra Michael Jackson lög út um allt… er konungur poppsins allt í einu að detta aftur í tísku? Ekki það að ég sé eitthvað að kvarta, þetta er bara svo óvænt! :'-) Lesa áfram...

þriðjudagur, 22. okt 2002

Borgar-san í herklæðum

Hér eru loksins komnar myndirnar sem ég lofaði af grímubúningnum mínum. Ég saumaði mér kimono með hakama og öllu tilheyrandi. Það tók mig bara þrjá daga að græja fatnaðinn en sverðin voru hins vegar erfiðari. Ég skar bæði katana og wakizashi úr þreföldum bókbandspappa eftir mynd og málum sem ég fann á netinu. Það sem ég [...] Lesa áfram...

laugardagur, 19. okt 2002

1.. 2.. og grímuball!

Ég sem hélt um síðustu helgi að grímubúningamál væru komin í vitleysu hjá mér… Aldrei að örvænta, ég dreif það af að sauma mér glæsilegan búning á 3 dögum enda er hér á ferðinni sjóaður textílraðmorðingi. Það sem ég saumaði verður leyndó þar til partýhöld hefjast en svo lofa ég myndum. Ég get þó gefið þær [...] Lesa áfram...

föstudagur, 18. okt 2002

"Ljótur skeggapi eða falleg eðla?"

Undanfarna daga hef ég aðeins verið að láta skeggið vaxa í andliti mínu. Þetta er svona auka thing fyrir grímubúninginn minn sem brúkaður verður á morgun. Gallinn er að ég er gjörsamlega að fríka út á þessu pirrandi hári sem er framan í mér. Þetta stingur eins og ný ullarnærföt… djöfull langar mig að raka… [...] Lesa áfram...

mánudagur, 14. okt 2002

Á-I

Ég er búinn að vera u.þ.b. eins þunnur og mögulegt er í dag enda ekki skrítið miðað við það sem gekk á í gærkveldi. Ég var gjörsamlega á perunni - eitthvað sem hefur ekki gerst í marga mánuði… Ég var eiginlega búinn að gleyma því hvað almennilegt fyllerí í góðum hópi getur verið mikil snilld. Þrátt [...] Lesa áfram...

föstudagur, 11. okt 2002

Undarlegur hlutur sem ég hef tekið eftir...

Ég kem mér fyrir uppí rúmi og undirbý mig fyrir laptop tölv, lestur eða eitthvað þessháttar. Nema, maður raðar undir sig koddum og púðum. Þá er alltaf hægt að taka neðsta koddann og færa hann efst (fyrir hnakkann) án þess að það breyti neinu fyrir heildina!? … Þetta kemur mér alltaf jafn mikið á óvart. Er [...] Lesa áfram...

mánudagur, 7. okt 2002

Frí frá míns hyski

Kæru vinir, Ég er búinn að vera svo önnum kafinn síðustu daga að ég var að mestu hættur að nota MSN Messenger. Vinsamlegast ekki halda að ég sé búinn að fá nóg af ykkur og sé farinn að blokka… Það er smá stund í það ennþá. =) Á laugardagskvöld (nótt öllu heldur) steindrapst síminn minn, sem er [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 2. okt 2002

Forseti Íslands tilvonandi?

Jonni spurði mig síðdegis í gær hvort að ég vildi ekki kíkja með sér á smá Stuðmanna gigg? Tjú, alveg eins segi ég, án þess að hafa hugmynd um hvað ég var að fara að sjá… Kom í ljós að Stuðmenn voru semsagt með einskonar yfirlits tónleika í þjóðleikhúsinu. Þau spiluðu úrval gamals efnis ásamt nokkrum [...] Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar