laugardagur, 28. sep 2002

Halló-vín...

Vinir mínir eru með ólíkindum skemmtilegt fólk. Svo miklu betri en vinir allra annara. Nú er hafinn undirbúningur fyrir hina árlegu halló-vín grímufatateiti sem alltaf er mikið lagt í. Stelpurnar eru komnar með skreytingamál í nefnd og ég er byrjaður að sauma mér búning.

Ó-já… saumavélin hefur verið tekin fram og litli textílhönnuðurinn er kominn á fullt span. Ég er auðvitað alveg sannfærður um að ég verð lang flottastur… Hvernig á ég að þrauka í mánuð? Spenningurinn mun drepa mig =^,^=


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings