Angband
Í dag er ég ákaflega kátur karl því að ég var að taka í notkun nýja útgáfu af Hengband. Hengband er semsagt Angband varíanturinn sem ég spila. Nördalegasti tölvuleikur í heimi.
Mér var bent á það fyrir nokkrum mánuðum síðan að ég væri ekki gjaldgengur sem nörd nema að ég spilaði Angband eða NetHack. Ég get ekki sagt að ég spili mikið af leikjum yfirleitt, en eftir að hafa kannað málið komst ég að því að þessir tveir eru bara með betri tölvuleikjum sem ég hef prufað. Þó finnst mér NetHack vera síðri (þrátt fyrir að hann sé fallegri útlits).
Kannski er það bara nördahúmorinn sem ég er að fíla. Ég er allavegna að spila Zonko, sem er 40 level ninja (auðvitað) og vegna allskonar vandræða með álög… 5 ára offitusjúklingur með rana. =D
