föstudagur, 30. ágú 2002

Nýtt íslandsmet

Ég varð vitni að nýju íslandsmeti í símtali í byrjun vikunar. Yfir 12 klukkutímar á 2.5 dögum! Við fórum þrír félagarnir í bústað sem methafi hafði fengið að láni. Við hinir tveir gátum ekki annað en dáðst að leikni hans með tækið.

Annars var þessi ferð bara snilld. Heitur pottur, bjór, tóbak og gott kompaní er sennilega eitthvað það besta sem lífið hefur uppá að bjóða.

Ég hitti loksins sæmilegan Tekken spilara. Í bústaðinn til okkar mætti dama sem var bara sæmilega fær um að slá frá sér. Ég ætla ekki að vera með neitt disrespect hérna… en dömur sökka yfirleitt í Tekken.

Reyndar, þegar ég fer að hugsa um það þá eru einu almennilegu spilararnir sem ég hef hitt sennilega Gústi og Úlfar… En þeir sem þekkja þá vita líka af hverju =)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings