fimmtudagur, 22. ágú 2002

Ég og einhver annar

Ég get ekki með orðum lýst því hvað það fer í taugarnar á mér þegar að fólk byrjar setningarnar sínar á; Ég og vinur minn þetta og hitt…. Aðallega fer þetta í mig á rituðu máli. Þetta þykir mér alveg dæmigert fyrir óvandað málfar samlanda minna (ég er þó svo sem engin fyrirmynd).

Klassískt er að byrja setningar svona; Ég og Siggi fórum í bíó, þá í stað Við Siggi fórum í bíó. Íslenskufræðingar eiga vafalítið til eitthvað orð yfir þessa fyrstupersónusýki en ég kann það bara ekki.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings