Meira nördagrúsk...
Ég er loksins búinn að fá Red Hat til að virka eins og það á að gera og ég verð að segja að KDE rokkar alveg feitar en ég átti von á. Það er lítið sem hægt að setja útá vesenið sem það var að setja þetta upp því að hvert einasta vandamál sem ég lenti í var sökum vélbúnaðar (það er svona að nota gamlar græjur).
Af PHP málunum er að segja að ég tók létta æfingu áðan og þýddi þetta bloggsystem mitt að mestu. PHP er pís of keik!
