HM lokið...
Einhver var að segja að fótbolti væri trúarbrögð í brasilíu, og er ljóst að þeir eru eitthvað farnir að rugla þessu saman!? Annars er svona frekar ömurlegt þegar liðið manns tapar í úrslitaleik - ég hélt ekki að ég væri svona heitur fyrir þessu, en…
Reyndar er ég mun sáttari við germani í dag heldur en ég var á síðasta EM, eftir það mót var ég viss um að þeir væru bara búnir. Hefði verið flott að sjá þá vinna í dag því að þeir halda næsta HM og er nokkuð ljóst að þeir koma til með að rúlla því upp (heimavöllur og það allt).
