sunnudagur, 30. jún 2002

Asnalegur dagur

Undarlegt lundarfar á mér þessa helgi. Ég er ekki búinn að vilja gera neitt nema forrita. Vinir og vandamenn reyna og reyna að fá mig út - en ég vil bara ekkert gera nema vinna!

Milli þess sem ég vélrita kóða á fáránlegum hraða sef ég eins og köttur (svona við og við). Þar að auki er ég að vinna algerlega stefnulaust. Ég byrjaði td. session áðan á því að fara að leita að fontum til að nota á jonnavefnum en endaði með því að forrita lítið gallerí script.

Guð má vita hvar þetta endar en ég er þó að afkasta einhverju… !?


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings