fimmtudagur, 2. maí 2002

Keikó

Í sjónvarpinu áðan var einhver fáránlegur þáttur um flotmörinn Keikó. Ég gerðist reyndar ekki svo djarfur að horfa en þetta skrínsjott sem ég sá vakti upp nokkrar spurningar.

Eru ekki allir búnir að fá nóg af þessum spikfisk? Það er orðið nokkuð ljóst að aumingja dýrið er nógu gáfað til að vita vel að frítt fæði og húsnæði er það besta sem líf hans hefur uppá að bjóða. Hann er varla að fara að bjarga sér sjálfur á meðan einhverjir sjávarlíffræðingar henda í hann beitu?

Ef planið er að hafa KR-inginn fljótandi bara sem húsdýr þarna í víkinni, af hverju þarf hann að hafa háskólamenntað þjónustufólk? Getur Hallur H. ekki bara brytjað oní'ann sjálfur?

Ég legg til að við étum hann bara! Þá fá þessir kanalúðar að vita hvar við stöndum! Beint fyrir aftan Japani í röðinni að Hvalahlaðbörðinu!


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar