Connection Sharing?
Fyrir nokkrum dögum setti ég upp Windows 2000 Advanced Server. Ég ákvað að nota bara innbyggða connection sharing
fítusinn til að routa netinu á tölvur heimilisins (þær eru 3 + serverinn). Þetta virkaði fínt og þurfti lítið fyrir þessu að hafa nema hvað fljótlega komumst við að því að við gátum ekki sent póst né stór form.
Eftir að hafa djöflast í allskonar settings í 3 daga gafst ég upp og installaði SyGate. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að samstundis virkaði allt alveg 100%. Nú er mér spurn, þrátt fyrir að ég viti vel að Microsoft eru oftast ekki með bestu lausnirnar, hvers vegna þeir eru að gefa þetta út ef það virkar ekki jack!?
