SQL Server 2005 Roadshow
Ég er búinn að vera á, öhh, "kynningu" á Microsoft SQL Server 2005. Í allan dag.
Græjan er töff. Það er ekki hægt að segja annað. Sérstaklega finnst mér bad-ass að sjá hlutina sem þeir eru að gera við XML.
Það er hins vegar furðulegt hvað ég er þreyttur eftir daginn miðað við að ég sat og hlustaði á létt spjall um vinnu með nýja möguleika í SQL Server.
Ekki það, fyrirlesarinn á forritunarsviðinu var góður.
