mánudagur, 3. feb 2003

Microsoft kemur á óvart

Ég er akkúrat núna alveg furðulostinn. Þannig er að ég er að skrifa smá Java applet sem spilar mússík og er búinn að vera að vinna í því í allan dag. Þegar ég fékk svo loks draslið til að compæla þá virkaði það nánast rétt.

Nánast, vegna þess að spilunar-þráðurinn virðist ekki vilja deyja (það þýðir að mússíkin hættir ekki þó maður sörfi eitthvað annað). Þegar ég prufaði þetta svo í Microsoft-VM datt kjálkinn í gólfið… þar virkar allt 100% rétt!?! Er ekki allt í lagi?

Það er um tvennt að velja… A: Microsoft eru með betri Java-maskínu, eða, B: Microsoft eru með böggaða maskínu en mitt bögg hittir akkúrat á þeirra bögg…

Sú seinni er útskýringin sem hausinn á mér er að fallast á því að það getur bara ekki verið raunveruleiki að Microsoft (og ég) geti gert hlutina rétt!?


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar