Hannes fluttur, pt. 1
Mér var þrælað út og látinn bera óendanlegt magn af kössum upp á fjórðu hæð. Sem var svo sem ekki erfiðast. Vest var að bogra inni í sendibíl í þungu heitu lofti að raða áðurnefndum kössum upp. Eins gott að ég fékk bjór í kaffitímanum. =)
Eftir bjórdrykkjuna skuttlaði ég svo lögreglumanni heim… á gráa jálknum hans Hannesar… ökuskírteinislaus. Lögreglumaðurinn var þarna í sömu erindum og ég. Svo sem ekkert merkilegt þannig (af því að ég fékk bara einn öl), bara fyndið að drekka bjór og skuttla svo löggunni heim. =)
Ég hélt svo aðeins áfram að stússast í þessu fram til 9 um kvöldið en þá sótti Andrea okkur Ingó af því að við vorum hættir að gera gagn. Við þrjú fórum bara vestur í bæ og gláptum á snilldar myndina Battle Royale.
