Var það eitthvað fleira?
Ég skil ekki alveg þessa áráttu starfsfólks lyfjaverslana að setja hluti í bréfpoka. Alveg sama hvað verslað er mikið, og sama hver varningurinn er, alltaf skal setja þetta í bréfpoka. Er þetta það sem kallað er gamli tíminn
eða er þetta bara til þess að fólk þurfi ekki að skammast sín þegar það kaupir herpeskremið?

Ein ummæli við “Var það eitthvað fleira?”
Þetta verður fyrst asnalegt þegar starfsfólkið rýrir gildi bréfpokans með því að gala glaðlega í hjálpsemi sinni: „Hilda Zophoniasdóttir, Zoloft og rítalín og kynfæravörtukrem gjössoveeel.“
Gulli skrifaði 6.12.2006 8:13